Miðlægar lausnir

Áhersla er lögð á heildarlausn í hverju verkefni fyrir sig þar sem teymi tæknifræðinga og rafvirkja vinnur að hönnun, teikningu og uppsetningu.

Heildarlausnir með áherslu á sjávarútveginn

Hönnun

Hönnun á tækjabúnaði og iðnstýrikerfum með sérfræðiþekkingu á sjávarútvegi og matvælavinnslu. Áhersla á hagkvæmni og áreiðanleika í nánu samstarfi við viðskiptavini.

Sjálfvirkni

Sérfræðiþekking á sviði iðntölvustýringa og skjákerfa fyrir iðnað. Með virku eftirliti, fjarstjórnun og upplýsingaöflun má auka afkastagetu og hagkvæmni í rekstri.

Teikning

Tví- og þrívíddarteikningar fyrir smíði á hvers kyns búnaði, auk rafmagns- og tækniteikninga.

Ráðgjöf

Þarfagreining og skipulagning á stórum sem smáum verkefnum. Áhersla á gott skipulag og skýra markmiðasetningu við hönnun og útfærslur viðskiptavina.

Verkefnastjórnun

Heildarstýring og eftirfylgni stærri verkefna þar sem fjöldi fagaðila vinna saman til að auka skilvirkni og hagkvæmni.

Áhættumat

Áhættumat á vinnuumhverfi og tækjum til að tryggja að kröfur og staðlar séu virtir ásamt gæðavottunum á búnaði.

Þekking, Traust, Framsækni, Hugrekki

Hönnunarteymi okkar aðstoðar viðskiptavini að ná settum markmiðum

Vísir hf.

Fjölmörg verkefni hafa verið unnin fyrir sjávarútvegsfyrirtækið Vísir hf í Grindavík. Meðal verkefna eru hússtjórnarkerfi fyrir frystirhús ásamt stjórn tækja fyrir vinnslu og frystikerfið, stýringar á einstökum tækjum í öðrum vinnslum fyrirtækisins auk uppsetningar á tilbúnum kerfum í samstarfi við aðra framleiðendur og þjónustu aðila.

Þorbjörn hf.

Verkefni fyrir sjávarútvegsfyrirtækið Þorbjörn hf í Grindavík m.a. hafa falist í hönnun og uppsetningu heildar- stýri og viðvörunarkefa í flest skip útgerðarinnar auk þess að sjá um hönnun og uppsetningu stýrikerfa í vinnslum fyrirtækisins á landi.

Royal Greenland

Stórt verkefni var unnið fyrir eina stærstu rækjuverksmiðju Royal Greenland í Grænlandi í samstarfi við fjöldamörg erlend fyrirtæki á sviði sjálfvirkni í matvælavinnslu. Verkefnið fólst m.a. í hönnun og forritun á stýrikerfi fyrir innmötun og suðu vinnslunar auk þess sem að samræmd var stjórnun á milli ólíkra kerfa vinnslunnar á miðlægan hátt í einu hússtjórnarkefi.